Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   fim 28. maí 2026 11:47
Elvar Geir Magnússon
Borgarstjóri New York mætti Arsenal klæddur á bænahátíð
Zohran Mamdani mætir í athöfnina.
Zohran Mamdani mætir í athöfnina.
Mynd: X/Zohran Mamdani
Zohran Mamdani, borgarstjórinn í New York, er gríðarlegur stuðningsmaður Arsenal og mikla athygli vakti þegar hann mætti Arsenal klæddur við bænahátíð í Bronx.

Mamdani fæddist í Úganda og er fyrsti borgarstjórinn í New York sem er múslimi.

Hann byrjaði að halda með Arsenal þegar hann var tíu ára þegar frændi hans gaf honum ísskápasegla með myndum af stjörnum Arsenal, þar á meðal Sylvain Wiltord, David Seaman, Sol Campbell og Thierry Henry.

Arsenal varð Englandsmeistari á dögunum og mun mæta Paris St-Germain í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í Búdapest á laugardag.



Slapp
banner
banner