Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   fim 28. maí 2026 11:01
Elvar Geir Magnússon
Filipe Luis tekur við Mónakó
Filipe Luis tekur við Mónakó.
Filipe Luis tekur við Mónakó.
Mynd: EPA
Filipe Luis er að taka við stjórnartaumunum hjá Mónakó en Fabrizio Romano greinir frá þessu.

Hann tekur við af Sébastien Pocognoli en stjórn félagsins ákvað að rifta samningi við hann, eftir að hann hafði tekið við liðinu aftur í október.

Mónakó gekk illa á lokaspretti tímabilsins í frönsku deildinni og fékk aðeins fimm stig af átján mögulegum í sex síðustu leikjunum. Liðið var í baráttu um Meistaradeildarsæti en fer í Sambandsdeildina.

Brasilíumaðurinn Filipe Luis hefur verið orðaður við ýmis félög síðustu mánuði, þar á meðal Bayer Leverkusen, Chelsea og Strasbourg.

Þessi fyrrum brasiliski landsliðmaður hefur síðustu ár stýrt Flamengo í heimalandinu.
Slapp
banner