Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   fim 28. maí 2026 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Real Madrid nær samkomulagi við Rüdiger
Mynd: EPA
Þýski varnarmaðurinn Antonio Rüdiger verður áfram í herbúðum Real Madrid en hann mun á næstu dögum skrifa undir nýjan eins árs samning við félagið.

Rüdiger hefur verið akkerið í vörn Madrídinga síðustu ár, eða frá því hann kom frá Chelsea árið 2022.

Á þessum fjórum árum hefur hann spilað 182 leiki og skorað átta mörk.

Hann var magnaður tímabilið 2023–2024 þegar Real Madrid varð Evrópumeistari. Hann var bæði valinn í lið ársins í Meistaradeildinni og í lið ársins í La Liga.

Samningur Rüdiger rennur út í næsta mánuði en Fabrizio Romano segir að Madrídingar hafi náð munnlegu samkomulagi við varnarmanninn um að framlengja hann um eitt ár.

Real Madrid mun tilkynna nýja samninginn á næstu dögum.
Slapp
banner
banner
banner