Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 28. júní 2020 19:51
Ívan Guðjón Baldursson
Smit í kvennaliði Fylkis
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Greint var frá því í kvöldfréttum RÚV að leikmaður kvennaliðs Fylkis hafi greinst með kórónuveiruna.

Fylkir leikur í Pepsi Max-deildinni og hefur farið vel af stað í ár og er með sjö stig eftir þrjár fyrstu umferðirnar.

Nú er líklegt að allt liðið verði sent í sóttkví og næstu leikir liðsins því í hættu.

Fylkir á útileik gegn Þór/KA á þriðjudaginn og heimaleiki við ÍBV og Breiðablik á næstu tveimur vikum.
Athugasemdir
banner
banner