Lögreglan leitar innbrotsþjófa sem stálu öllu steini léttara frá sumarhúsi Marco Verratti, miðjumanns Paris Saint-Germain, á Ibiza.
Verðmæti ránsfengsins er í heildina talinn nema 2,5 milljónum punda eða um 405 milljónum íslenskra króna.
Verratti leigir sjálft húsið af brasilísku ofurstjörnunni Ronaldo en brotist var inn í það snemma sunnudags, þegar Verratti og fjölskylda voru ekki heima.

Verratti hefur verið að njóta sumarfrísins á Ibiza ásamt eiginkonu sinni, fyrirsætunni frönsku Jessica Aidi.
Hann hefur ekkert tjáð sig um innbrotið og lögreglan vill ekki gefa upp neinar upplýsingar.
Athugasemdir