Fimm landsliðsmenn sem hefðu getað valið aðra íþrótt
Það er mikið af frábæru íþróttafólki sem Ísland hefur alið af sér en hér förum við yfir nokkra framúrskarandi íþróttamenn sem hefðu getað valið að ná langt í fleiri en einni íþróttagrein. Sumir völdu fótboltann fram yfir aðrar boltaíþróttir eins og handbolta og körfubolta, aðrir völdu að sleppa fótboltanum og fara með krafta sína annað, eða jafnvel bara að slá í gegn í öllu. Þessi listi er alls ekki tæmandi enda fullt af frábæru fólki sem var framúrskarandi íþróttafólk en hér verður farið yfir nokkur góð nöfn.




