Óli Jó: Líflegri núna en við vorum í maí
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er mjög ánægður að fá þrjú stig gegn flottu Skagaliði," sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, eftir 2-1 sigur gegn ÍA á útivelli í Pepsi Max-deildinni í kvöld.
Óli segist hafa verið orðinn frekar smeykur þegar ÍA reyndi að ná inn jöfnunarmarki undir lokin.
„Þegar leikurinn er í gangi þá geturðu fengið á þig mark. Sem betur fer gerðist það ekki."
Framundan er Evrópuleikur í Búlgaríu hjá Val. Liðið heldur ytra í nótt og það er langt ferðalag framundan. Fyrri leikurinn að Hlíðarenda endaði 1-1 þar sem Ludogorets frá Búlgaríu gerði jöfnunarmark undir lokin.
„Það leggst ljómandi vel í okkur. Þetta er eitt það skemmtilegasta sem við gerum að spila í Evrópukeppni. Þetta verður bara gaman," sagði Óli.
Valsmenn eru í bullandi Evrópubaráttu eftir vandræði framan af móti. „Við höfum ekki efni á að hugsa um meira en einn leik í einu, en við erum líflegri núna en við vorum í maí."
Viðtalið er hér að ofan.