Fotbolti.net
28.09.20 - 12:30
Aksentije Milisic

Myndband: Coutinho klobbaði dómarann

Myndband: Coutinho klobbaði dómarann
Canon

Mynd: Getty Images

Barcelona átti ekki í vandræðum með Villareal í La Liga deildinni á Spáni í gær.
Þetta var fyrsti leikur Ronald Koeman með Barcelona og var liðið 4-0 yfir í hálfleik þar sem Ansu Fati gerði tvö mörk og Lionel Messi eitt. Fjórða marki var sjálfsmark hjá gestunum.

Philippe Coutinho sýndi skemmtileg tilþrif en hann klobbaði þá dómara leiksins. Coutinho var að rekja boltann þegar dómarinn stóð beint fyrir framan hann.

Brassinn sniðugi tók því léttan klobba á dómarann og stóð af sér tæklingu frá leikmanni Villareal í kjölfarið. Þetta skemmtilega atvik má sjá hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.