Micah Richards, fyrrum varnarmaður Manchester City, telur að félagið eigi að semja við Daniel Sturridge, fyrrum framherja Liverpool.
Hinn 31 árs gamli Sturridge er félagslaus og Richards telur að City eigi að krækja í hann meðan meiðsli eru í fremstu víglínu.
Hinn 31 árs gamli Sturridge er félagslaus og Richards telur að City eigi að krækja í hann meðan meiðsli eru í fremstu víglínu.
„Ég myndi vilja sjá hann fylla stöðu Sergio Aguero og Gabriel jesus meðan þeir eru meiddir. Jafnvel þó að hann sé ekki í besta formi sínu þá myndi hann skora mörk í þessu liði," sagði Richards.
„Í augnablikinu er eins og fólk hafi gleymt því hversu góður hann er, en Daniel hefur ennþá tíma til að minna fólk á sig og sýna hvað í honum býr."
Sturridge hóf meistarflokksferil sinn hjá Manchester City en þar spilaði hann meðal annars með Richards.
Athugasemdir