Fotbolti.net
28.11.21 - 11:20
Aksentije Milisic

Salah reiður þegar stuðningsmaður vildi selfie

Atvikið í gær.

Atvikið í gær.

Canon

Mynd: EPA

Mohamed Salah spilaði vel eins og venjulega þegar Liverpool valtaði yfir Southampton í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Leiknum lauk með öruggum 4-0 sigri heimamanna en staðan var 3-0 í hálfleik og því aldrei spurning hvernig þessi leikur færi.

Klopp var hins vegar ekki sáttur með hvað sitt lið gaf mörg færi á sér og hann vill að þetta verði lagað strax. Enginn afsláttur hjá þjóðverjanum.

Eftir leikinn hljóp stuðningsmaður Liverpool að Salah og vildi fá 'selfie' með leikmanninum. Salah brást mjög illa við og var ekki sáttur með þetta athæfi hjá stuðningsmanninum.

Myndir náðust af Salah pirruðum að kalla á öryggisverðina til að fjarlægja manninn burt. Þessa daganna hefur verið erfitt að ná brosinu af andliti Salah en þessi stuðningsmaður náði að pirra hann.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.