Karim Adeyemi, leikmaður Dortmund, hefur verið eftirsóttur í janúar en það er útlit fyrir að hann verði áfram hjá þýska liðinu.
Adeyemi er 23 ára gamall en Napoli hafði mikinn áhuga á honum og þá hefur hann einnig verið orðaður við Liverpool og Chelsea.
Hann hefur hins vegar tjáð öllum félögunum sem hafa haft samband við hann að hann vilji vera áfram hjá Dortmund.
Dortmund hefur verið í miklu brasi heima fyrir en liðið er í 11. sæti þýsku deildarinnar. Liðið er hins vegar í góðum málum í Meistaradeildinni og fer líklega áfram í umspil.
Adeyemi hefur leikið 14 leiki í öllum keppnum á tímabilinu, skorað fimm mörk og lagt upp fimm.
Athugasemdir