Búist við öðru tilboði frá Arsenal - Býr Fati til pláss fyrir Rashford? - Hvað verður um Tel?
   mið 29. janúar 2025 20:13
Brynjar Ingi Erluson
Amorim um Rashford: Hann verður að breytast
Marcus Rashford þarf að breyta hugarfari sínu
Marcus Rashford þarf að breyta hugarfari sínu
Mynd: EPA
Ruben Amorim
Ruben Amorim
Mynd: EPA
Ruben Amorim, stjóri Manchester United, segir að Marcus Rashford þurfi að breytast til þess að eiga möguleika á að komast aftur í liðið, en þetta sagði hann á blaðamannafundi í dag.

Enski sóknarmaðurinn hefur ekki verið í myndinni hjá Amorim síðasta mánuðinn og hefur leikmaðurinn talað um að hann sé tilbúinn að takast á við nýtt ævintýri.

Fjölmiðlar hafa talað um að það sé ekkert samband milli Amorim og Rashford og að þeir talast ekki við.

Eftir leiki United gegn Fulham á dögunum sagði Amorim enska leikmanninn ekki leggja sig nægilega mikið fram.

Amorim hafði lofað því að ræða ekki mál Rashford í dag, en ákvað samt að gera lokatilraun til þess að hreyfa við Englendingnum.

„Liðið okkar ætti að vera svo miklu betra með Rashford, en hann verður að breytast. Ef hann gerir það þá erum við meira en tilbúnir að nota hæfileikaríkan leikmann eins og hann. Við þurfum á því að halda.“

„Á þessu augnabliki er ljóst að við þurfum að setja einhverskonar staðal. Núna bíðum við eftir Marcus og hvort hann virkilega þráir þetta.“

„Þið reynið að gera þetta að einhverju persónulegu en þetta er ekki persónulegt. Ég hef ekkert á móti Marcus en ég verð að setja sömu reglur fyrir alla og það er bara svo einfalt. Það sama á við um alla.“

„Staðan er sú sama fyrir alla leikmenn og síðast þegar ég talaði um þetta í síðasta leik var niðurstaða mín sú að ég set ekki leikmann inn sem gefur ekki allt í þetta. Ég sagði ekki að ég myndi ekki setja Marcus Rashford inn, þannig staðan er sú sama. Ég mun setja spila hvaða leikmanni sem er þegar ég tel rétta augnablikið til þess að gera það.“

„Við erum betra lið með Rashford, það er alveg skýrt. Hann er ótrúlega hæfileikaríkur, en ég mun ekki breyta skoðun minni fyrr en rétta augnablikið kemur upp. Það er þannig og ég mun alltaf koma með sama svar,“
sagði Amorim.

Spurður að því hvort hann væri vonsvikinn með að skilaboð hans væru ekki að ná til Rashford svaraði Amorim að hann ætlaði ekki gefa frekari upplýsingar um framherjann.

„Ég lofaði því í dag að ég myndi ekki gefa ykkur neinar upplýsingar um Rashford. Ég gef ykkur smá, en þetta er samt það sama. Við þurfum mörk, einn á móti einum og ógn á síðasta þriðjungi vallarins,“ sagði Amorim í lokin.
Athugasemdir
banner
banner