Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 29. febrúar 2020 21:00
Ívan Guðjón Baldursson
Klopp: Mikilvægt að tapa eins og maður
Mynd: Getty Images
Jürgen Klopp var svekktur eftir tap gegn Watford í dag en sagðist þó vera stoltur af vinnuframlagi sinna manna.

„Þeir gerðu nákvæmlega það sem þeir ætluðu að gera, ekki við. Þannig virkar fótbolti," sagði Klopp.

„Þetta var ótrúlega erfiður leikur, það gekk ekkert upp hjá okkur. Við þurfum að samþykkja þetta þó það sé ekki auðvelt.

„Ég er stoltur af strákunum, þeir lögðu sig fram allan leikinn og misstu aldrei haus. Það er gott að vinna en þegar maður tapar þá er mikilvægt að gera það eins og maður."

Athugasemdir
banner
banner
banner