Harry Kane hefur verið orðaður við brottför frá Tottenham, hann ræddi við Sky Sports um vonbrigðin að hafa ekki náð að vinna titla með félaginu og framtíðina.
Kane var spurður hvort hann ætlaði sér að vera hjá Tottenham allan sinn feril.
„Þetta er ein af þessum spurningum sem erfitt er að svara. Ég elska Spurs og mun alltaf gera það. En eins og ég hef alltaf sagt ef ég fæ það einhvern tímann á tilfinninguna að við séum ekki á réttri leið sem lið þá mun ég skoða mín mál," sagði Kane.
„Ég er metnaðarfullur leikmaður, ég vil bæta mig, ég vil ná lengra, ég vil vera einn af allra bestu leikmönnum í heimi," sagði Harry Kane sem raðað hefur inn mörkunum fyrir Tottenham undanfarin ár.
Athugasemdir