Fotbolti.net
<b>Spá þjálfara í 2. deild:</b> 8. sæti

29.04.23

Spá þjálfara í 2. deild: 8. sæti

GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON

Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í 2. deild í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla þjálfara liðanna í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin því stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Völsungi er ekki spáð eins góðu gengi og í fyrra, en þeim er spáð áttunda sæti deildarinnar.
Spáin:
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8. Völsungur, 53 stig
9. Víkingur Ó., 46 stig
10. KV, 42 stig
11. KF, 32 stig
12. KFG, 19 stig

Lokastaða í fyrra: Völsungur átti mjög gott tímabil í fyrra, allavega framan af. Lengi vel voru þeir með í baráttunni um annað sætið en að lokum enduðu þeir í fjórða sæti. Þeir enduðu 16 stigum frá Þrótti, sem var í öðru sæti, eftir að hafa hægt mjög á sér í síðustu leikjunum. Þeir enduðu í þriðja sæti 2021 og það verður fróðlegt að sjá hvernig þeir fylgja því eftir í sumar.

Þjálfarinn: Jóhann Kristinn Gunnarsson hætti eftir síðasta tímabil. Hann hafði þjálfað liðið í sex ár samfleytt og þar áður í þrjú ár. Hann hefði gert gríðarlega flotta hluti en í hans stað taka heimamennirnir Aðalsteinn Jóhann Friðriksson og Bjarki Baldvinsson við stjórnartaumunum. Aðalsteinn verður aðalþjálfari og Bjarki honum til aðstoðar. Aðalsteinn hefur stýrt kvennaliðinu síðustu þrjú ár en Bjarki er að taka sín fyrstu skref í þjálfun. Aðalsteinn og Bjarki þekkja félagið vel enda tveir leikjahæstu leikmenn félagsins.

Álit Ástríðunnar
Hlaðvarpsþátturinn Ástríðan er leiðandi í umfjöllun um 2. deild. Þáttarstjórnendur gefa sitt álit á liðunum fyrir mót.
Bjarki Baldvinsson og Aðalsteinn Jóhann.

Bjarki Baldvinsson og Aðalsteinn Jóhann.

Mynd: Græni Herinn/Facebook

Um Völsung segja þeir: Völlararnir mæta til leiks í ár aðeins öðruvísi en undanfarin ár. Enginn Sæþór Olgeirs sem er hættur, enginn Áki Sölva sem fór í Dalvík. Jóhann Kristinn búinn að halda þessu uppi síðastliðin ár og nú koma tveir fyrrum leikmenn og taka við. Hafa komið á óvart nokkrum sinnum áður en það eru mörg spurningarmerki á Húsavík.

Styrkleikar: Að mörgu leyti mjög svipaður leikmannahópur. Það er sterkt. Margir heimastrákar sem lifa fyrir félagið og svo er heimavöllurinn öflugur.

Veikleikar: Stórir póstar farnir og spurning hvað Bjarki Baldvinsson verður mikið með. Nýtt og óreynt þjálfarateymi. Markaskorun hefur legið svolítið hjá framherja liðsins og spurning hvort Sigurður Hrannar geti leyst það. Ekki orðinn veikleiki ennþá en hann verður án Bjarka að leggja upp færi. Hvað verða Baldur Sig og Pálmi Rafn mikið með?

Lykilmenn: Baldur Sigurðsson, Santiago Abalo og Adolf Bitegeko.
Áki Sölvason verður ekki með Völsungi í ár en hann raðaði inn mörkum fyrir liðið í fyrra.

Áki Sölvason verður ekki með Völsungi í ár en hann raðaði inn mörkum fyrir liðið í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Gaman að fylgjast með: Jakob Héðinn Róbertsson. Þetta þarf að vera árið þar sem hann springur út. Spilað nokkur tímabil með liðinu í 2. deild þrátt fyrir ungan aldur en hann er fæddur árið 2005.

Komnir
Árni Fjalar Óskarsson frá Einherja (var á láni)
Björgvin Máni Bjarnason frá KA (á láni)
Einar Ísfjörð Sigurpálsson frá Tindastóli
Hákon Atli Aðalsteinsson frá KA (á láni)
Juan Guardia Hermida frá Spáni
Pálmi Rafn Pálmason frá KR
Rúnar Þór Brynjarsson frá Samherjum
Sigurður Hrannar Þorsteinsson frá ÍA (á láni)
Stefán Óli Hallgrímsson frá Einherja (var á láni)

Farnir
Áki Sölvason í KA (var á láni)
Guðmundur Óli Steingrímsson í Magna
Inle Valdés Mayarí til Spánar
Jaime Agujetas Otero til Spánar
Mikel Abando Arana til Spánar
Rafnar Máni Gunnarsson í Þór

Þjálfarinn segir - Aðalsteinn Jóhann Friðriksson
„Spá er bara spá. Hún kemur okkur ekkert á óvart. Breytingar á leikmannahópi hafa verið á þá leiðina að eldri og kannski reynslumeiri menn hafa horfið á braut á meðan eru ungir og spennandi leikmenn að taka við keflinu."
Pálmi Rafn gekk í raðir Völsungs í sumar.

Pálmi Rafn gekk í raðir Völsungs í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það er ekkert nýtt að ungir leikmenn séu í stórum hlutverkum á Húsavík svo tilhlökkunin er bara mikil og leikmenn eru spenntir og tilbúnir að fara af stað."

Fyrstu þrír leikir Völsungs:
5. maí, Völsungur - Höttur/Huginn (PCC völlurinn Húsavík)
13. maí, ÍR - Völsungur (ÍR-völlur)
20. maí, Víkingur Ó. - Völsungur (Ólafsvíkurvöllur)
Adolf er öflugur varnarmaður.

Adolf er öflugur varnarmaður.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Úr leik á síðasta tímabili.

Úr leik á síðasta tímabili.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.