Sálfræðingurinn fékk rautt á Hlíðarenda - „Menn voru bara æstir"

Arnar Grétarsson, Sigurður Heiðar Höskuldsson og Thomas Danielsen.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Það vakti mikla athygli í kvöld þegar Thomas Danielsen, íþróttasálfræðingur Vals, fékk að líta rauða spjaldið í leik gegn Stjörnunni í Bestu deildinni.
Lestu um leikinn: Valur 3 - 2 Stjarnan
Það var hiti á bekknum hjá Val í seinni hálfleiknum. Sigurður Heiðar Höskuldsson, aðstoðarþjálfari liðsins, fékk fyrst gult spjald og svo fékk Danielsen rauða spjaldið.
„Menn voru bara æstir," sagði Siggi Höskulds í viðtali við Fótbolta.net eftir leik.
„Við vorum svekktir út í dómgæsluna og okkur fannst halla á okkur, allavega í spjaldagjöfinni inn á vellinum. Ég held að þetta hafi verið ágætlega dæmt og allir skilja sáttir."
Danielsen var ráðinn til Vals fyrir tímabilið en hann starfaði áður fyrir KA. Hann kom til Íslands í gegnum Hallgrím Jónasson, þjálfara KA, en þeir kynntust þegar Hallgrímur spilaði með SönderjyskE í Danmörku.
Danielsen var ekki sá eini í liðsstjórn sem fékk rautt spjald í Bestu deildinni í kvöld. Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, fékk líka rautt spjald í leik Víkings og KA en hann var á bekknum hjá sínum mönnum.