Fotbolti.net
29.05.26 - 09:30
Elvar Geir Magnússon

Tottenham að landa Senesi

Senesi er 29 ára miðvörður.

Senesi er 29 ára miðvörður.

Canon

Mynd: EPA

Tottenham er nálægt því að landa varnarmanninum Marcos Senesi frá Bournemouth á frjálsri sölu.

Ekki er alveg búið að ganga frá samkomulagi við þennan 29 ára leikmann um kaup og kjör en viðræður eru komnar langt.

Sama á við um viðræður Tottenham við skoska bakvörðinn Andy Robertson sem er samningslaus eftir að hafa yfirgefið Liverpool.
Bournemouth reyndi í vetur að fá Senesi til að skrifa undir nýjan samning en gafst upp eftir að hann hafnaði þriðja tilboði félagsins og fór að ræða við aðra klúbba.

Senesi á þrjá landsleiki fyrir Argentínu og allt stefnir í að hann verði áfram í ensku úrvalsdeildinni. Hann lék alla leiki Bournemouth, fyrir utan einn, í deildinni á þessu tímabili en liðið hafnaði í sjötta sæti og tryggði sér þátttökurétt í Evrópu.

Senesi hefur verið fjögur ár hjá Bournemouth og leikið 128 leiki síðan hann kom frá Feyenoord í Hollandi 2022.

Tottenham hafnaði í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og náði að bjarga sér frá falli eftir að Roberto De Zerbi tók við liðinu. Félagið hyggst styrkja sig í sumar til að forðast það að lenda aftur í sömu vandræðum.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal38+4485
2Manchester City38+4278
3Manchester Utd38+1971
4Aston Villa38+765
5Liverpool38+1060
6Bournemouth38+457
7Sunderland38-654
8Brighton38+653
9Brentford38+353
10Chelsea38+652
11Fulham38-452
12Newcastle38-249
13Everton38-349
14Leeds38-747
15Crystal Palace38-1045
16Nott. Forest38-344
17Tottenham38-941
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.