Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 29. júní 2020 11:00
Magnús Már Einarsson
Angel Gomes á förum frá Manchester United
Mynd: Getty Images
Allt bendir til þess að miðjumaðurinn efnilegi Angel Gomes yfirgefi herbúðir Manchester United þegar samningur hans rennur út á morgun.

Hinn 19 ára gamli Gomes hefur lengi átt í viðræðum um nýjan samning en ekkert samkomulag hefur náðst.

Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, var spurður að því á fréttamannafundi í morgun hvort hann reikni með að Gomes sé á förum.

„Ég hef ekki heyrt frá honum í gærkvöldi eða í morgun svo það virðist ekki hafa náðst neitt samkomulag;" sagði Solskjær.

„Stutta svarið er líklega - já."
Athugasemdir
banner