Fotbolti.net
29.06.22 - 11:00
Elvar Geir Magnússon

Hvert mark Lukaku hefur kostað Chelsea milljarð króna

Hvert mark Lukaku hefur kostað Chelsea milljarð króna
Canon

Mynd: EPA

Stuðningsmenn Chelsea voru með miklar væntingar þegar Romelu Lukaku var keyptur á 97,5 milljónir punda frá Inter fyrir ári síðan.

Lukaku er nú á leið aftur til Inter á láni en hann skoraði aðeins 15 mörk fuyrir Chelsea á síðasta tímabili; átta í deildinni, tvö í Meistaradeildinni, þrjú í FA-bikarnum og tvö á HM félagsliða.

Ef við setjum það upp í einfalt reikningsdæmi, rétt til gamans, þá hefur hvert mark Lukaku kostað 6,5 milljónir punda eða meira en milljarð íslenskra króna.
Lukaku var magnaður með Inter þegar liðið varð Ítalíumeistari á síðasta ári en síðasta tímabil reyndist honum strembið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.