Fotbolti.net
29.06.23 - 14:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Skrifar frá: Laugardalsvöllur

„Erum ekki að fara inn í þetta mót bara til að hafa gaman"

Auglýsing
U19 landslið kvenna tekur þátt á lokakeppni EM í næsta mánuði.

U19 landslið kvenna tekur þátt á lokakeppni EM í næsta mánuði.

Canon

Mynd: KSÍ

Hertz
„Spennan er að magnast. Það er tilhlökkun og eftirvænting að fá að hitta stelpurnar og fara af stað í þetta verkefni," segir Margrét Magnúsdóttir, þjálfari U19 landsliðs kvenna, í samtali við Fótbolta.net.
U19 landsliðið er að fara að taka þátt í lokakeppni Evrópumótsins og verður ein af átta þjóðum sem tekur þátt á mótinu.

„Við fáum fimm daga saman hér heima og náum svo þremur dögum saman úti fyrir fyrsta leik. Þennan tíma munum við nýta vel til að æfa og funda, og þjappa okkur vel saman. Ég er mjög spennt að hitta stelpurnar aftur og ég veit að það er tilhlökkun hjá leikmönnunum að koma saman, að fá að byrja þetta af fullum krafti," segir Margrét.

Hægt er að skoða hópinn fyrir mótið með því að smella hérna. Margrét segir að það hafi auðvitað verið erfitt að velja hópinn. „Auðvitað er þetta erfitt en á sama tíma er þetta partur af starfinu."

Íslenska liðið er í riðli með Frakklandi, Tékklandi og Spáni. Þetta er ansi erfiður riðill.

„Já, það var alveg vitað að við fengjum alvöru riðil. Við fengum líka hörkuleiki í milliriðlinum... Alveg frá því að við byrjuðum með þetta lið þá höfum við alltaf leyft okkur að hugsa stórt og dreyma stórt, vera óhræddar við að setja markið hátt. Við munum klárlega gera það og draumurinn okkar er að komast sem lengst í þessu móti. Við erum ekki að fara inn í þetta mót bara til að hafa gaman. Við ætlum að gera stóra hluti og halda áfram að þróa okkar leik, að stækka og verða betri," segir Margrét.

Hægt er að horfa á viðtalið við Margréti í heild sinni í spilaranum hér að ofan. Þá er hægt að hlusta á lengra viðtal við hana úr Heimavellinum hér fyrir neðan.

Heimavöllurinn: Magga Magg og U19 á EM

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.