Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 29. júlí 2021 15:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið FH í Noregi: Baldur Logi inn fyrir Vuk
Baldur Logi í leik með FH á síðustu leiktíð.
Baldur Logi í leik með FH á síðustu leiktíð.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Seinni leikur FH við norska liðið Rosenborg í Sambandsdeildinni hefst klukkan 17:00. FH tapaði fyrri leiknum 2-0 í Kaplakrika og er því ekki í góðri stöðu.

Byrjunarlið FH-inga fyrir leikinn í Þrándheimi er klárt og má sjá það hér að neðan.

Ólafur Jóhannesson gerir eina breytingu frá fyrri leiknum. Vuk Oskar Dimitrijevic fær sér sæti á bekknum og inn kemur miðjumaðurinn Baldur Logi Guðlaugsson.

Byrjunarlið FH:
1. Gunnar Nielsen (m)
2. Hörður Ingi Gunnarsson
4. Pétur Viðarsson
6. Eggert Gunnþór Jónsson
7. Steven Lennon
9. Matthías Vilhjálmsson (f)
10. Björn Daníel Sverrisson
11. Jónatan Ingi Jónsson
16. Guðmundur Kristjánsson
17. Baldur Logi Guðlaugsson
21. Guðmann Þórisson

Varnarmaðurinn Hólmar Örn Eyjólfsson byrjar í hjarta varinnar hjá Rosenborg.

Sjá einnig:
Boltadagur í beinni - Gluggalok og Sambandsdeildin


Athugasemdir
banner
banner
banner