Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 29. nóvember 2021 22:43
Brynjar Ingi Erluson
Messi við Lewandowski: Þú átt skilið að fá verðlaunin
Robert Lewandowski var valinn framherji ársins í kvöld en missti hins vegar af gullknettinum
Robert Lewandowski var valinn framherji ársins í kvöld en missti hins vegar af gullknettinum
Mynd: EPA
Lionel Messi, leikmaður Paris Saint-Germain og argentínska landsliðsins, hlaut gullknöttinn í sjöunda sinn á ferlinum í kvöld en hann kallaði einnig eftir því að Robert Lewandowski myndi fá gullknöttinn fyrir síðasta ár.

Það voru flestir sammála um það að Lewandowski var besti knattspyrnumaðurinn á síðasta ári. Hann vann þrennuna með Bayern og raðaði inn mörkunum.

Kórónuveirufaraldurinn hafði mikil áhrif á fótboltann og ákvað France Football að sleppa því að gefa Ballon d'Or verðlaunin á síðasta ári en Lewandowski þótti líklegastur til að hreppa þau.

Hann var valinn besti leikmaður heims af FIFA fyrir síðasta ár en missti af tækifærinu til að vinna gullknöttinn Messi hélt ræðu þegar hann vann verðlaunin í kvöld og vonast eftir því að France Football gefi Lewandowski verðlaunin fyrir síðasta ár.

„Ég vil nefna Robert Lewandowski sérstaklega því það heiður að berjast við hann um verðlaunin. Ég er á því að France Football eigi að gefa þér verðlaunin fyrir árið 2020 því þú áttir skilið að vinna þá."

„Það voru allir sammála um það að þú hafir verið sigurvegarinn á síðasta ári,"
sagði Messi.
Athugasemdir
banner