Fotbolti.net
29.11.24 - 10:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Oliver hefur fundað oftar en einu sinni með Fylki

Oliver hefur fundað oftar en einu sinni með Fylki
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Oliver Sigurjónsson er sem stendur án félags eftir að hafa yfirgefið Breiðablik fyrr í þessum mánuði.

Miðjumaðurinn yfirgaf uppeldisfélagið sem Íslandsmeistari og er þessa dagana að skoða landslagið.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur hann fundað með Fylki og það oftar en einu sinni. Fylkir féll úr Bestu deildinni og verður í Lengudeildinni næsta sumar.
Oliver kveður Breiðablik - „Sjáumst síðar í öðrum lit“
TENGT EFNI

Oliver kveður Breiðablik - „Sjáumst síðar í öðrum lit“

Oliver er 29 ára og á að baki 152 leiki í efstu deild. Hann lék á sínum tíma 50 leiki fyrir yngri landsliðin og á að baki tvo A-landsleiki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.