Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mán 30. janúar 2023 18:02
Ívan Guðjón Baldursson
Lukic búinn í læknisskoðun hjá Fulham
Mynd: EPA

Fulham er búið að krækja sér í serbneska landsliðsmanninn Sasa Lukic. Hann kemur úr röðum Torino fyrir 10 milljónir evra.


Fabrizio Romano greinir frá því að Torino hafi samþykkt tilboð í Lukic í gærkvöldi og að leikmaðurinn hafi lokið við læknisskoðun í dag.

Lukic er 26 ára miðjumaður með 35 landsleiki að baki fyrir Serbíu. Hann hefur verið mikilvægur hlekkur á miðju Torino undanfarin ár en átti aðeins eitt og hálft ár eftir af samningi sem hann vildi ekki endurnýja.

Torino er þegar búið að krækja í leikmanninn sem leysir Lukic af hólmi. Sá heitir Ivan Ilic og er uppalinn hjá Manchester City en hefur spilað með Verona undanfarin misseri. Ilic þykir gífurlega öflugur og hafði Torino betur í baráttunni við Marseille um kaupin.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner