Fotbolti.net
30.01.23 - 22:08
Elvar Geir Magnússon

Tottenham að tryggja sér Porro

Pedro Porro.

Pedro Porro.

Canon

Mynd: EPA

Í kvöld bárust þær fréttir að Tottenham sé að landa samkomulagi við Sporting Lissabon um hægri bakvörðinn Pedro Porro.

Gluggadagurinn er á morgun og skammur tími til stefnu. Porro er 23 ára og hefur ekki farið leynt með að hann vill ólmur fara til enska félagsins.

Nú er vaxandi bjartsýni hjá Spurs um að kaupin gangi í gegn fyrir gluggalok en talið er að kaupverðið verði tæplega 40 milljónir punda.
Tottenham mun borga upphæðina í nokkrum greiðslum.

Þá segir Sky Sports að Tottenham hafi einnig samþykkt að gefa eftir 15% klásúlu um framtíðarsölu Marcus Edwards, leikmanns Sporting sem kom upp úr akademíu Tottenham.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.