Tveir leikmenn til viðbótar í pólska landsliðshópnum hafa greinst með kórónuveiruna fyrir leikinn gegn Englandi í undankeppni HM annað kvöld.
Grzegorz Krychowiak og Kamil Piatkowski reyndust báðir smitaðir í prófi sem leikmenn Póllands gengust undir í gær.
Lukasz Skorupski og Mateusz Klich höfðu áður greinst smitaðir um helgina.
Pólska knattspyrnusambandið er í sambandi við UEFA fyrir leikinn á morgun og vel er fylgst með öðrum leikmönnum í hópnum.
Athugasemdir