Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 30. apríl 2021 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Sara Björk tekur þátt í HM í endurnýjanlegri orku
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði og lykilmaður í ógnarsterku liði Lyon, tekur þátt í HM í endurnýjanlegri orku. Það er partur af átaki þar sem íþróttafólk minnir á mikilvægi endurnýjanlegrar orku fyrir framtíð mannkynsins.

Fréttatilkynning frá Samorku:
Keppnin var sett af stað til að minna á mikilvægi þess að auka hlut endurnýjanlegrar orku í heiminum og gera úr því góðlátlega keppni á milli landa. Samorka ákvað að taka áskorun Energi Norge og taka þátt.

Ísland stendur vel að vígi í þessari heimsmeistarakeppni. Ísland framleiðir eingöngu endurnýjanlega orku, en jarðefnaeldsneyti er enn notað í samgöngur. Alls er 83% af allri orku sem notuð er innanlands endurnýjanleg. Það er hins vegar hægt að fara alla leið.

Orkuskipti í samgöngum eru grundvallaratriði þess að Ísland standist alþjóðlegar skuldbindingar í loftslagsmálum og um leið er það tækifæri til að verða 100% sjálfbær í orkunotkun. Það myndi spara háar upphæðir sem fara annars í innkaup á innfluttri olíu og loftslaginu hlíft við milljónum tonna af gróðurhúsalofttegundum.



Athugasemdir
banner
banner