Samir Nasri verður ekki sérfræðingur fyrir Canal+ í úrslitaleik Meistaradeildarinnar milli Arsenal og PSG í dag eins og áætlað var.
Þessi fyrrum leikmaður Arsenal hafði verið staðfestur í hlutverkið en hefur nú dregið sig út eftir móðganir frá stuðningsmönnum PSG í undanúrslitaleik liðsins gegn Bayern München.
Þessi fyrrum leikmaður Arsenal hafði verið staðfestur í hlutverkið en hefur nú dregið sig út eftir móðganir frá stuðningsmönnum PSG í undanúrslitaleik liðsins gegn Bayern München.
Nasri, sem lék áður með Marseille, sagði í samtali við L’Equipe að hann væri vanur því að fá að heyra það frá stuðningsmönnum Parísarliðsins.
„Það fylgir því að vera fyrrum leikmaður Marseille að vera móðgaður af stuðningsmönnum PSG,“ sagði Nasri.
Hann viðurkenndi þó að ákveðin ummæli hefðu farið yfir strikið. „Það sem fór í taugarnar á mér var að þeir móðguðu móður mína,“ sagði Frakkinn.
Nasri vill þó meina að það sé ekki ástæðan fyrir því að hann sleppi úrslitaleiknum í Búdapest. Frekar telji hann að betra sé að hafa skýrari tengingu við liðin í útsendingunni.
„Það er betra að hafa Robert Pires, sem er mikill Arsenal-maður, og David Ginola, sem er mikill PSG-maður, frekar en einhvern hlutlausan eins og mig,“ sagði hann.
Nasri hafði nýlega spáð því að PSG myndi vinna úrslitaleikinn, en samband hans við stuðningsmenn Arsenal er heldur ekki gott eftir umdeild félagaskipti hans til Manchester City árið 2011.


