Fotbolti.net
30.06.21 - 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Kristján Guðmunds: Katrín elskar að skora mörk

Auglýsing
Kristján Guðmunds: Katrín elskar að skora mörk
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Hertz
Stjarnan vann frábæran 2-1 sigur gegn Breiðablik á útivelli í Pepsi Max deild kvenna í kvöld.
Kristján Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar var að vonum ánægður í leikslok. Hann var til viðtals hjá fótbolti.net eftir leikinn.

„Mér líður mjög vel og okkur öllum. Vel útfærður leikur hjá stelpunum og mjög duglegar án bolta svo erum við alltaf að verða betri og betri með boltann."

Hvað varstu búinn sjá fyrir þér fyrir leik að þið þyrftuð að gera til að taka þrjú stig?

„Það var gríðarlega erfitt að undirbúa þennan leik því að ógnirnar eru nánast úr hverri einustu leikstöðu og mjög erfitt að sækja á þær líka þannig að þetta var mjög flókið. Það sem við fórum í var að breyta einum styrkleika hjá þeim í veikleika og það tókst ágætlega."

Hann var beðinn um að úskýra það betur.

„Við eigum eftir seinni leikinn, við verðum að sjá til. Við vorum með ákveðnar færslur til að búa til svæði til að sækja í og það tókst ágætlega."

Kristján var mjög ánægður með skyndisóknir og varnarleik liðsins.

„Við viljum að þær sendi sem oftast fram á við. Þá breytist líka hugarfarið, að maður sé að senda fram og ætlar sér að sækja, sterkur varnarleikur, vel dekkað í fyrri en losnaði aðeins í seinni en við lifðum það af."

Reynsluboltinn Katrín Ásbjörnsdóttir skoraði bæði mörk liðsins í kvöld. Hlýtur að vera sterkt að vera með svona reynslubolta í liðinu?

Já, tvær lykil stöðurnar á vellinum er markmaðurinn og framherjinn. Katrín hefur komið vel inn í þetta í sumar, hún er gríðarlega góð í fótbolta, elskar að spila og skora mörk. Hún hefur fyllt inn í skarðið fyrir þær sem vantar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.