Margrét Lára: Heiður að vera komin í þennan merka hóp
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Valur endurheimti toppsætið í Pepsi-Max deild kvenna með 5-1 sigri á Stjörnunni. Margrét Lára fyrirliði Vals skoraði þrennu í leiknum og var fyrsta markið hennar í leiknum það 200. í efstu deild. Hún var virkilega sátt með sigurinn.
"Bara geggjaður liðssigur á flottu Stjörnuliði. Þær eru vel skipulagðar, með flott og ungt lið svo við erum mjög sáttar með að fá 3 stig."
Margrét kom Val yfir með mikilvægu marki eftir hálftíma leik.
"Já algjörlega, en 1:0 staða er ekkert í svona leik, það getur allt gerst. Þær hefðu kannski getað potað inn marki og þá hefði þetta verið annar leikur. Mér fannst svona þegar annað og þriðja markið kom að þetta væri orðinn okkar leikur. En mér fannst bara Valsliðið spila frábærlega í dag, varnarleikurinn var frábær og skapaði Stjarnan sér varla færi í dag."
Eins og áður sagði skoraði Margrét sitt 200. mark í efstu deild. Vissi hún af því að það væri svona stutt í þennan áfanga?
"Já ég vissi að ég væri komin í 199 mörk og fannst ómögulegt að staldra of lengi í því. Það er gaman að ná því og heiður að vera komin í þann hóp kvenna sem er þar."
En stefnir hún á að ná Olgu Færseth sem skoraði 269 mörk?
"Nei ég held að Olga verði bara í sérflokki þar. Ég leyfi henni að eiga það met enda frábær leikmaður."
Margrét Lára er núna komin með 10 mörk í deildinni í sumar. Stefnir hún á að verða markahæst?
"Nei ekki beint, ég er bara glöð þegar við vinnum og það skiptir mig mestu máli. Við erum núna 3 í Valsliðinu komnar yfir 10 mörk og mér finnst það sýna gríðarlega liðsheild."
Viðtalið við Margréti í heild sinni má sjá hér að ofan.