Engir áhorfendur verða leyfilegir á leikjum kvöldsins í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. KA og Víkingur R. greina frá þessu á Twitter síðum sínum en liðin eiga bæði leik í Mjólkurbikarnum í kvöld.
Í dag voru hertar reglur kynntar á Íslandi vegna kórónuveirunnar en þar var mælst með því að kappleikir fullorðna verði frestað til 10. ágúst. Þessar reglur taka gildi á morgun og því verða síðustu leikirnir í bili í kvöld.
Í dag voru hertar reglur kynntar á Íslandi vegna kórónuveirunnar en þar var mælst með því að kappleikir fullorðna verði frestað til 10. ágúst. Þessar reglur taka gildi á morgun og því verða síðustu leikirnir í bili í kvöld.
Leikir kvöldsins
17:30 KA-ÍBV (Stöð 2 Sport 3 - Greifavöllurinn)
18:00 FH-Þór (Stöð 2 Sport - Kaplakrikavöllur)
19:15 Breiðablik-Grótta (Kópavogsvöllur)
19:15 KR-Fjölnir (Meistaravellir)
19:15 Fram-Fylkir (Framvöllur)
19:15 HK-Afturelding (Kórinn)
20:00 Víkingur R.-Stjarnan (Stöð 2 Sport 3 - Víkingsvöllur)
Í ljósi aðstæðna hefur verið tekin sú ákvörðun að leikir í 16. liða úrslitum Mjólkurbikarsins fari fram án áhorfenda.
— Víkingur FC (@vikingurfc) July 30, 2020
Við biðjum alla stuðningsmenn um að sýna þessu skilning.
Leikur Víkings og Stjörnunnar verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og hefst klukkan 20:00.
Athugið að vegna Covid-19 stöðunnar verða áhorfendur ekki leyfðir á leik KA og ÍBV í dag kl. 17:30.
— KA (@KAakureyri) July 30, 2020
Minnum á að leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og því ekkert mál að fylgjast með gangi mála #LifiFyrirKA @mjolkurbikarinn pic.twitter.com/RAifJ7cW5y
Athugasemdir