Chelsea verðmetur Jackson á 100 milljónir punda - Rashford efstur á óskalista Barcelona - Sancho til Juventus?
   fös 30. júlí 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Roma að kaupa Shomurodov frá Genoa
Ítalska félagið Roma er að ganga frá kaupum á Eldor Shomurodov, framherja Genoa. Fabrizio Romano greinir frá.

Shomurodov er 26 ára og kemur frá Úsbekistan en hann er aðeins annar leikmaðurin frá þjóðinni sem spilar í Seríu A.

Hann kom til Genoa frá rússneska félaginu Rostov á síðasta ári og skoraði átta mörk í ítölsku deildinni á síðasta tímabili.

Roma hefur komist að samkomulagi við Genoa um kaup á framherjanum en félagið borgar 20 milljónir evra.

Shomurodov verður fjórði leikmaðurinn sem Jose Mourinho fær til félagsins en Roger Ibanez, Rui Patricio og Bryan Reynolds komu til félagsins fyrr í sumar.
Athugasemdir
banner