Fotbolti.net
30.07.22 - 13:43
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Æfingaleikir: Man Utd tapaði gegn Atletico - Arsenal rústaði Sevilla

Æfingaleikir: Man Utd tapaði gegn Atletico - Arsenal rústaði Sevilla
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United mætti Atletico Madrid í æfingaleik í dag og stefndi í markalaust jafntefli allt þar til undir lokin. Rauðu djöflarnir áttu góðan fyrri hálfleik en seinni hálfleikurinn var nokkuð jafn.

Atletico gerði níu skiptingar á 59. mínútu á meðan Man Utd gerði aðeins þrjár skiptingar í leiknum. Joao Felix og Alvaro Morata komu inn af bekknum og voru það þeir sem sáu um sigurmarkið, Felix skoraði eftir stoðsendingu frá Morata.

Fred fékk sitt annað gula spjald skömmu síðar og urðu lokatölur 0-1 fyrir Atletico. 

Rauðu djöflarnir eiga eftir að spila æfingaleik við Rayo Vallecano á morgun og svo mæta þeir Brighton í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar um næstu helgi.

Man Utd 0 - 1 Atletico Madrid
0-1 Joao Felix ('86)
Rautt spjald: Fred, Man Utd ('91)

Arsenal gjörsamlega rústaði Sevilla á sama tíma er liðin mættust í hinu árlega Emirates Cup.

Þar fóru Bukayo Saka og Gabriel Jesus á kostum í upphafi leiks þar sem staðan var orðin 4-0 eftir 19 mínútur. Saka og Jesus settu sitthvora tvennuna áður en Jesus fullkomnaði sína þrennu í seinni hálfleik. Eddie Nketiah kom inn af bekknum og skoraði að lokum sjötta og síðasta markið í stórsigrinum.

Chelsea spilaði þá annan æfingaleik við Udinese á innan við 24 klukkustundum og sýndi aftur mikla yfirburði.

Ruben Loftus-Cheek skoraði skömmu fyrir leikhlé og innsiglaði Hakim Ziyech sigurinn með marki úr vítaspyrnu snemma í síðari hálfleik.

Þetta voru síðustu æfingaleikir Arsenal og Chelsea fyrir fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar. Arsenal heimsækir Crystal Palace á föstudaginn og á Chelsea útileik gegn Everton næsta laugardag.

Arsenal 6 - 0 Sevilla
1-0 Bukayo Saka ('10, víti)
2-0 Gabriel Jesus ('13)
3-0 Gabriel Jesus ('15)
4-0 Bukayo Saka ('19)
5-0 Gabriel Jesus ('77)
6-0 Eddie Nketiah ('89)

Udinese 0 - 2 Chelsea
0-1 Ruben Loftus-Cheek ('45)
0-2 Hakim Ziyech ('56, víti)

Æfingaleikir: Man Utd tapaði gegn Atletico - Arsenal rústaði Sevilla
Canon

Mynd: Getty Images

Æfingaleikir: Man Utd tapaði gegn Atletico - Arsenal rústaði Sevilla
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.