Miðjumaðurinn Aron Elís Þrándarson heldur áfram að standa sig frábærlega með OB í dönsku úrvalsdeildinni.
Aron er í liði vikunnar í dönsku úrvalsdeildinni hjá Tipsbladet í annað sinn á tímabilinu.
„Íslendingurinn - ásamt markverðinum Hans Christian Bernat - hefur verið besti leikmaður OB á tímabilinu. Þrándarson var aftur sterkur á miðjunni gegn Nordsjælland og vann mörg einvígi," segir í umsögn um Aron.
Aron var í síðasta landsliðshópi Íslands. Á síðustu árum hefur hann farið úr því að vera sóknarsinnaður miðjumaður í það að vera varnarsinnaðari.
Með því að smella hérna er hægt að sjá lið vikunnar í heild sinni.
Athugasemdir