Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 30. desember 2020 12:27
Elvar Geir Magnússon
Lasse Petry yfirgefur Val og semur við HB Köge (Staðfest)
Lasse Petry er 28 ára.
Lasse Petry er 28 ára.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danski miðjumaðurinn Lasse Petry hefur skrifað undir samning við B-deildarfélagið HB Köge í heimalandi sínu. Hann kemur á frjálsri sölu frá Íslandsmeisturum Vals en samningur hans var útrunninn.

„Það eru nokkrir fjölskyldutengdir hlutir sem toga í mig að koma heim til Danmerkur og nokkrir íþróttatengdir hlutir sem toga í mig að vera áfram hér," sagði Petry við danska fjölmiðla í nóvember.

Valsmenn reyndu að halda Petry enda var hann valinn í úrvalslið tímabilsins í Pepsi Max-deildinni og átti frábært sumar.

Valur

Komnir
Tryggvi Hrafn Haraldsson frá Lilleström
Arnór Smárason frá Lilleström
Kristófer Jónsson frá Haukum

Farnir
Lasse Petry til HB Köge
Aron Bjarnason til Ujpest (Var á láni)
Eiður Aron Sigurbjörnsson í ÍBV
Einar Karl Ingvarsson í Stjörnuna
Kasper Högh til Randers (Var á láni)
Athugasemdir
banner
banner
banner