31.01.20 - 15:00
Magnús Már Einarsson
Cavani fer ekki frá PSG

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Edinson Cavani mun klára tímabilið í herbúðum PSG en þetta staðfesti Thomas Tuchel, þjálfari liðsins, í dag.
<i>„Það eru til verri aðstæður í lífinu en að vera áfram hjá PSG,"</I> sagði Tuchel.
<i>„Ég held að honum muni líða vel. Hann þarf að ná sjálfstrausti og takti á ný. Edi er hér og hann er frábær leikmaður. Við breytum ekki hópnum og það er gott."</I>

Hinn 32 ára gamli Cavani hefur verið sterklega orðaður við Atletico Madrid í þessu mánuði sem og fleiri félög.
Cavani verður samningslaus í sumar og líklegt er að hann fari þá frítt til Atletico Madrid.