Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 31. janúar 2023 16:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu fyrstu myndina af Jorginho í treyju Arsenal
Jorginho fer í Arsenal.
Jorginho fer í Arsenal.
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Jorginho er að ganga í raðir Arsenal frá nágrönnunum í Chelsea. Hann muni skrifar undir samning við félagið til ársins 2024.

Fyrsta myndin af honum í treyju Arsenal er núna í dreifingu.

Arsenal hefur komist að samkomulagi við Chelsea um kaup á leikmanninum. Mun Arsenal, sem er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, borga um 12 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Jorginho hefur leikið með Chelsea frá 2018 en þá kom hann til félagsins frá Napoli.

Árið 2021 var hans besta ár á ferlinum er hann hjálpaði Chelsea að vinna Meistaradeildina og ítalska landsliðinu að vinna Evrópumótið. Hann er núna 31 árs gamall, en hann kemur til með að styrkja Arsenal sem er í meiðslavandræðum.

Von er á tilkynningu fljótlega en hér fyrir neðan má sjá fyrstu myndina af Jorginho í treyju Arsenal.


Athugasemdir
banner
banner