
Grindavík er að þétta raðirnar fyrir komandi átök í Lengjudeild karla. Búið er að semja við þrjá erlenda leikmenn en þeir eiga eftir að fá leikheimild.
Um tvo miðjumenn og einn hægri kantmann er að ræða. Þeir koma allir til Grindavíkur eftir að hafa spilað í næst efstu deild í Slóveníu á síðasta tímabili.
Um tvo miðjumenn og einn hægri kantmann er að ræða. Þeir koma allir til Grindavíkur eftir að hafa spilað í næst efstu deild í Slóveníu á síðasta tímabili.
Josip Krznaric er 31 árs króatískur miðjumaður sem kemur á frjálsri sölu en hann spilaði síðast með NK Krka. Hann hefur spilað í heimalandinu, Slóvakíu, Eistlandi, Austurríki og Slóveníu á sínum ferli.
Matevz Turkus er 24 ára Slóveni sem var fyrirliði NK Fuzinar á síðasta tímabili. Hann er hægri kantmaður sem á leiki fyrir unglingalandslið Slóveníu. Á ferli sínum hefur hann einnig spilað í Austurríki. Hann varð slóvenskur bikarmeistari árið 2018 með uppeldisfélaginu Olimpija Ljubljana.
Eric Vales er 23 ára miðjumaður frá Andorra. Hann hefur leikið í heimalandinu, á Spáni og á síðasta tímabili lék hann með ND Bilje í Slóveníu. Hann á að baki tíu landsleiki fyrir Andorra og hefur verið í öllum hópum síðan í nóvember 2022.
Leikmennirnir þrír eru allir hjá SC3 Football Management umboðsskrifstofunni. Það er sama umboðsskrifstofa og er með Marko Vardic og Edi Horvat sem léku með Grindavík í fyrra.
Komnir
Adam Árni Róbertsson frá Þrótti V.
Luka Sapina frá Reyni S. (var á láni)
Óliver Berg Sigurðsson frá Sindra (var á láni)
Farnir
Dagur Austmann Hilmarsson í Fjölni
Edi Horvat til Slóveníu
Marko Vardic í ÍA
Guðjón Pétur Lýðsson
Óskar Örn Hauksson í Víking R.
Ólafur Flóki Stephensen í Val (var á láni)
Tómas Orri Róbertsson í Breiðablik (var á láni)
Alexander Veigar Þórarinsson
Athugasemdir