Guðjón Þórðarson, fyrrum landsliðsþjálfari valdi tvö úrvalslið í þættinum Sportið í kvöld á Stöð 2 Sport í kvöld. Hann valdi fyrst lið skipað þeim leikmönnum sem hann þjálfaði hjá félagsliðum á Íslandi.
Í kjölfarið valdi hann úrvalslandslið sitt og bætti við einum laumufarþega sem hann þjálfaði ekki sem landsliðsþjálfari.
Markvörður: Birkir Kristinsson
Hægri bakvörður: Brynjar Björn Gunnarsson
Miðvörður: Lárus Orri Sigurðsson
Miðvörður: Eyjólfur Sverrisson
Vinstri bakvörður: Hermann Hreiðarsson
Djúpur á miðju: Rúnar Kristinsson (einnig í félagsliða úrvalinu)
Djúpur á miðju: Sigurður Jónsson (einnig í félagsliða úrvalinu)
Fremstur á miðju: Gylfi Þór Sigurssðon (lék undir stjórn Guðjóns hjá Crewe Alexandra)
Hægri kantur: Þórður Guðjónsson (einnig í félagsliða úrvalinu)
Vinstri kantur: Arnar Gunnlaugsson (einnig í félagsliða úrvalinu)
Fremsti maður: Eiður Smári Guðjohnsen
Athugasemdir