Fotbolti.net
31.05.17 - 22:28
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson

Óli Jó: Sem betur fer gleymist stundum að dekka

Auglýsing
Valsmenn eru dottnir úr bikarnum

Valsmenn eru dottnir úr bikarnum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Borgun
Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals var ekki óánægður með leik sinna manna þrátt fyrir 2-1 tap gegn Stjörnunni í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins í kvöld.

„Ég var ekki óánægður með þennan leik í sjálfu sér. Þetta var ágætis spilamennska hjá okkur. Það gekk illa að opna þá þannig við fengum engin færi,\" sagði Óli Jó.

Valur fékk mikið af föstum leikatriðum í leiknum, og þá sérstaklega hornspyrnur sem liðið náði ekki að nýta sér. Á meðan skoraði Stjarnan úr tveimur föstum leikatriðum.

„Í svona leikjum þegar tvö jöfn lið eru að spila þá skipta þessir litlu hlutir eins og föst leikatriði miklu máli. Það þarf að vera fókúseraður á það og það skipti máli í dag. Þeir nýttu sín færi tvö. Ég veit það ekki, ég var ekki inn í teig.\"

Bæði mörk Stjörnunnar komu eins og áður segir eftir hornspyrnu.

„Það er bara eins og gengur og gerist í fótbolta. Það eru hornspyrnur og menn ekki dekkaðir. Ef menn væru alltaf dekkaðir þá væri hægt að henda mörkunum í burtu. En sem betur fer gleymist stundum að dekka.\"

Dion Acoff var ekki í leikmannahópi Vals í kvöld. Hann byrjaði á bekknum í síðasta leik gegn Grindavík en kom þá inná undir lok leiksins.

„Af því að hann er meiddur eins og þú sagðir. \"

Valur er bikarmeistari síðustu tveggja ára en nú er ljóst að liðið nær ekki sínum þriðja titli í röð.

„Það er hundfúlt, það er ömurlegt. Það er frábært að spila í þessum bikar en það er búið hjá okkur í ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.