Úrslitaleikur PSG og Lyon í franska deildabikarnum er farinn af stað og má sjá byrjunarlið kvöldsins hér fyrir neðan.
PSG vann frönsku deildina eftir að tímabilið var stöðvað vegna Covid-19. Lyon rétt missti af Evrópusæti og var stjórn félagsins afar ósátt með ákvörðun yfirvalda í Frakklandi að binda enda á tímabilið. Leikurinn í kvöld er því síðasta tækifæri félagsins til að vinna sér inn sæti í Evrópudeildinni á næstu leiktíð.
Úrslitaleikurinn í kvöld er sögulegur af ýmsum ástæðum, en þó aðallega því þetta verður síðasti leikur deildabikarsins. Búið er að leggja keppnina niður.
Bæði lið tefla fram sterkum byrjunarliðum og kemur þessi leikur á góðri tímasetningu fyrir áframhaldið í Meistaradeild Evrópu. PSG er komið í 8-liða úrslit eftir sigur gegn Dortmund á meðan Lyon er 1-0 yfir gegn Juventus í 16-liða úrslitum fyrir seinni leikinn á Ítalíu.
Neymar, Angel Di Maria og Mauro Icardi leiða sóknarlínu PSG. Í byrjunarliðinu má einnig finna Idrissa Gana Gueye, fyrrum leikmann Everton. Þá er Ander Herrera, fyrrum leikmaður Man Utd, á bekknum.
Í liði Lyon eru það Memphis Depay og Moussa Dembele sem leiða sóknarlínuna. Bruno Guimaraes byrjar á miðjunni.
PSG: Navas - Kurzawa, T. Silva, Kimpembe, Bakker - Verratti, Marquinhos, Gueye - Di Maria, Icardi, Neymar
Varamenn: Rico, Kehrer, Diallo, Paredes, Herrera, Draxler, Choupo-Moting, Kalimuendo
Lyon: Lopes - Dubois, Denayer, Marcelo, Marcal, Cornet - Caqueret, Guimaraes, Aouar - Dembele, Memphis
Varamenn: Racioppi, Andersen, Rafael, Mendes, Reine-Adelaide, J. Lucas, Ekambi, B. Traore, Cherki
Athugasemdir