Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 31. júlí 2021 11:55
Brynjar Ingi Erluson
Ólympíuleikarnir: Cunha skaut Brössum áfram - Japan vann í vító
Matheus Cunha var hetja Brasilíumanna gegn Egyptalandi
Matheus Cunha var hetja Brasilíumanna gegn Egyptalandi
Mynd: EPA
Brasilía og Japan tryggðu sig í dag inn í undanúrslitin á Ólympíuleikunum í Tókýo. Matheus Cunha skoraði sigurmark brasilíska liðsins.

Cunha skoraði eina mark leiksins gegn Egyptalandi en það kom á 37. mínútu eftir undirbúning frá Richarlison.

Brasilía mætir Mexíkó eða Suður-Kóreu.

Japan vann þá Nýja-Sjáland 4-2 í vítaspyrnukeppni. Staðan var markalaus eftir venjulegan leiktíma.

Japanska liðið skoraði úr öllum spyrnum sínum í vítaspyrnukeppninni og mætir því Spánverjum í undanúrslitum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner