Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 31. júlí 2022 14:39
Brynjar Ingi Erluson
Ronaldo í byrjunarliði Man Utd gegn Rayo Vallecano
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo er í byrjunarliði Manchester United sem mætir Rayo Vallecano í æfingaleik klukkan 15:00 í dag.

Ronaldo ferðaðist ekki með liðinu til Ástralíu og Taílands í æfingabúðir og tjáði hann félaginu að hann vildi fara til að eiga möguleika á að spila Meistaradeildarbolta á næsta tímabili.

Man Utd hefur hingað til sagt að hann sé ekki á förum en Ronaldo fundaði með félaginu í síðustu viku og er staða hans sú sama samkvæmt ensku miðlunum.

Ronaldo hefur verið í því að hafna alls konar falsfréttum í gegnum aðgang sinn á Instagram og staðfesti þá að hann myndi spila gegn Rayo.

United er búið að tilkynna byrjunarliðið og er Ronaldo í liðinu en það má sjá hér fyrir neðan.

Byrjunarlið Man Utd: Heaton, Laird, Varane, Martínez, Telles, Garner, Van de Beek, Eriksen, Chong, Garnacho, Cristiano Ronaldo.


Athugasemdir
banner
banner
banner