Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   mán 11. ágúst 2014 16:45
Arnar Daði Arnarsson
Bestur í 2. deild: Stórslys ef Leiknir fer ekki upp
Leikmaður 15. umferðar: Almar Daði Jónsson (Fjarðabyggð)
Almar Daði í leik með Fjarðabyggð í sumar.
Almar Daði í leik með Fjarðabyggð í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Leiknir Fáskrúðsfirði
Mynd: 123.is/leiknirfaskrudsfirdi
,,Ætli við tökum ekki bara einn leik fyrir í einu, það er víst reglan. Þetta lítur bara mjög vel út hjá okkur," sagði Almar Daði Jónsson leikmaður Fjarðabyggðar sem er leikmaður 15. umferðar í 2. deild karla.

Almar Daði og félagar unnu góðan 3-2 heimasigur gegn Aftureldingu á gervigrasinu á Neskaupstað um helgina og styrktu stöðu sína í toppbaráttunni. Almar Daði skoraði tvívegis í seinni hálfleik.

,,Við spiluðum mjög góðar 85 mínútur í leiknum og vorum heilt yfir miklu betri. Við spiluðum boltanum mjög vel og börðumst fyrir hvern annan. Það hefði verið mjög ósanngjarnt ef þeir hefðu náð að jafna," sagði Almar Daði en Afturelding minnkuðu muninn í eitt mark í uppbótartíma eftir að hafa verið þremur mörkum undir.

,,Þetta var slys. Við misstum einbeitinguna í fimm mínútur. Við gáfum ódýrar aukaspyrnur út á köntunum sem svona lið þrífast á. Það sem skiptir mestu er þó að við fengum þrjú stig og þá er öllum drullusama um þessi tvö mörk."

Fjarðabyggð sem eru nýliðar í 2. deildinni eru í 2. sæti deildarinnar með 34 stig, átta stigum fleiri en ÍR sem eru í 3. sæti deildarinnar þegar sjö umferðir eru eftir af mótinu.

,,Menn yrðu ansi svekktir ef við klúðrum þessu. Við erum í þvílíkri kjörstöðu til að klára þetta. Besta við þetta er að við þurfum ekki að treysta á neina aðra nema okkur sjálfa," sagði Almar sem gekk til liðs við Fjarðabyggðar frá Leikni F. fyrir tímabilið.

,,Mér líður mjög vel í Fjarðabyggð. Ég hef spilað undir merki KFF síðan í 4. flokki þannig þetta var kannski ekkert gríðarlega mikil breyting. Auðvitað hjálpar það til að liðið er í toppbaráttu og liðinu gengur vel," sagði Almar Daði sem er ánægður með spilamennsku sína í undanförnum leikjum.

,,Markaskorunin mætti vera betri. Reyndar sat ég frekar mikið á bekknum fyrri hluta tímabils sem var frekar pirrandi en hef byrjað seinustu fjóra leiki þannig ég er mjög sáttur í augnablikinu."

Fyrrum liðsfélagar Almars í Leikni F. eru í góðri stöðu í 3. deildinni. Þar sitja þeir efstir í deildinni með með ansi gott forskot. Almar Daði hefur enga trú á öðru en að Leiknismenn fari upp um deild í sumar.

,,Ég held ég sé búinn að ná tveimur leikjum hjá þeim. Það verður talið stórslys ef þeir komast ekki upp, en það er ekkert að fara gerast. Þeir virðast vera langbesta liðið í 3. deildinni," sagði Almar Daði að lokum í samtali við Fótbolta.net.

Sjá einnig:
Leikmaður 14. umferðar: Halldór Hilmisson (Grótta)
Leikmaður 13. umferðar: Bjarki Þór Jónasson (Völsungur)
Leikmaður 12. umferðar: Viggó Kristjánsson (Grótta)
Leikmaður 10. umferðar: Jón Gísli Ström (ÍR)
Leikmaður 9. umferðar: Björn Axel Guðjónsson (Njarðvík)
Leikmaður 8. umferðar: Brynjar Jónasson (Fjarðabyggð)
Leikmaður 7. umferðar: Andri Þór Magnússon (Fjarðabyggð)
Leikmaður 6. umferðar: Atli Haraldsson (Sindri)
Leikmaður 5. umferðar: Hrafn Jónsson (Grótta)
Leikmaður 4. umferðar: Milos Ivankovic (Huginn)
Leikmaður 3. umferðar: Arnar Sigurðsson (Grótta)
Leikmaður 2. umferðar: Viktor Smári Segatta (ÍR)
Leikmaður 1. umferðar: Alexander Aron Davorsson (Afturelding)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner