Arsenal hlustar á tilboð í Jesus - Tottenham reynir við Gallagher - Liverpool orðað við varnarmann Frankfurt
   mið 07. febrúar 2018 22:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Búningarnir sem Nígería spilar í gegn Íslandi vekja lukku
Mynd: Getty Images
Það styttist í Heimsmeistaramótið í Rússlandi með hverjum deginum og spennan er farin að magnast. Liðin sem taka þátt á mótinu eru farin að opinbera búninga sína fyrir mótið.

Þó Ísland hafi ekki enn gert það eru liðin í sama riðli farin að opinbera sína búninga. Nígeríumenn hafa sýnt frá búningunum sem þeir munu spila í gegn Íslandi í Rússlandi.

Búningarnar hjá Nígeríu hafa vakið mikla lukku og þykja einstaklega flottir. Aðalbúningurinn er gamaldags, og er lauslega byggður á búningnum sem var notaður á HM 1994.

Varabúningurinn minnir á aðaltreyjurnar sem Nígería hefur notað síðustu ár, er dökkgrænn.

Nígería og Ísland mætast í Rússlandi þann 22. júní.

Hér að neðan eru myndir af búningunum.












Athugasemdir
banner
banner