Aldurinn færist yfir okkur öll en starfsævi fótboltamanna er styttri en hjá flestum öðrum. Hér eru tíu leikmenn sem eru komnir yfir sitt besta og eiga erfitt með að sinna sínu starfi almennilega. Football365.com tók saman.
10) Tim Howard - Hefur reynst Everton vel en er ekki lengur í úrvalsdeildarklassa. Röð mistaka eru aldrei langt undan.
9) Rio Ferdinand - Margir spáðu því að reynsla hans myndi vega þungt fyrir QPR en tankurinn er alveg tómur.
7) Sylvain Distin - Var hrikalega öflugur um langt skeið en skórnir fara pottþétt á hilluna í sumar.
6) Mikel Arteta - Meiðsli hafa sett strik í reikninginn en allir geta verið sammála um að Arteta er engan veginn nægilega góður fyrir topplið.
5) Branislav Ivanovic - Margir á listanum hafa verið lengi í lægð en Ivanovic er nýlega byrjaður að dala.
3) Gareth Barry - Eftir frábært fyrsta tímabil hjá Everton var eins og það væri ýtt á slökkva takkann á Barry.
2) Steven Gerrard - Settur í algjört aukahlutverk hjá Liverpool eftir að hann tilkynnti að hann væri á förum. Ekki að ástæðulausu og stuðningsmenn kvarta ekki yfir fjarverju hans.
Athugasemdir