Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, heimsótti íslenska kvennalandsliðið á Gullna túlipanann, hótel stelpnanna, í Hollandi í hádeginu í gær og borðaði með þeim hádegismat.
Sjá einnig:
Guðni Th. snæddi með stelpunum okkar
Sjá einnig:
Guðni Th. snæddi með stelpunum okkar
Guðni kom stelpunum til að hlæja, en í viðtali við Vísi.is segir Guðbjörg Gunnarsdóttir, landsliðsmarkvörður, að Fanndís Friðriksdóttir hafi átt stóran þátt í því.
„Það var einhver brandari um að hann hefði mætt aðeins of seint kallinn. Fanndís lét Guðna aðeins heyra það en hann svaraði á mjög fyndinn hátt þannig Fanndís gat ekkert svarað honum aftur," sagði Guðbjörg þegar hún ræddi við Vísi.
Guðni er mættur til Hollands, ásamt fjölskyldu sinni, til að fylgjast með stelpunum á Evrópumótinu.
Athugasemdir