Massimiliano Allegri hefur sagt vinum sínum frá því að hann muni taka við enska liðinu Arsenal í sumar. Þetta fullyrðir knattspyrnuvefmiðillinn CalcioMercato
Allegri er í dag þjálfari Juventus en í fréttinni segir að Allegri ætli sér að vinna allt sem hægt er að vinna með ítalska liðinu í vetur og flytja sig síðan til Englands næsta sumar.
Samningur Arsene Wenger við Arsenal rennur út eftir tímabilið og eru margir stuðningsmenn liðsins á því að tími sé kominn á nýtt blóð í starfið.
Hinn 49 ára Allegri tók við Juventus árið 2014 og hefur síðan unnið ítölsku deildina í tvígang.
Athugasemdir