Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
banner
   lau 01. febrúar 2020 14:41
Ívan Guðjón Baldursson
Fótbolta.net mótið: Stjarnan hreppti bronsið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan 3 - 1 ÍBV
1-0 Jósef Kristinn Jósefsson ('6)
2-0 Hilmar Árni Halldórsson ('8)
2-1 Víðir Þorvarðarson ('23)
3-1 Sjálfsmark ('90)
Rautt spjald: ÍBV ('88)

Stjarnan tryggði sér þriðja sætið á Fótbolta.net mótinu í dag með sigri í fjörugum leik gegn ÍBV.

Jósef Kristinn Jósefsson og Hilmar Árni Halldórsson skoruðu snemma leiks en Víðir Þorvarðarson náði að minnka muninn fyrir Eyjamenn og staðan 2-1 í leikhlé.

Leikurinn var því galopinn í síðari hálfleik en Garðbæingar tryggðu sér sigur undir lokin. Fyrst misstu Eyjamenn mann af velli og svo skoruðu þeir sjálfsmark.

Lokastaðan:
1. ÍA
2. Breiðablik
3. Stjarnan
4. ÍBV
5. HK
6. Grótta
7. Grindavík
8. FH
Athugasemdir
banner
banner
banner