01.02.21 - 18:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kabak fær meðmæli frá vini Klopp - „Á að slá umboðsmanninn til riddara"

Ozan Kabak.

Mynd: Getty Images

Jurgen Klopp og David Wagner.

Mynd: Getty Images

Kabak í leik með Schalke.

Mynd: Getty Images

Ozan Kabak.

Mynd: Getty Images
Tyrkneski varnarmaðurinn Ozan Kabak er að ganga í raðir Liverpool frá Schalke, neðsta liði þýsku úrvalsdeildarinnar.
Hinn efnilegi Kabak er fenginn til að leysa vandamál í varnarlínu Liverpool sem skapaðist vegna fjölda meiðsla.
Kabak kemur á lánssamningi með kaupmöguleika. Liverpool borgar eina milljón punda fyrir samninginn og getur keypt ungstirnið fyrir 18 milljónir punda til viðbótar.
Kabak hóf feril sinn hjá Galatasaray og spilaði 17 leiki fyrir aðalliðið þar áður en hann gekk í raðir Stuttgart í Þýskalandi í fyrir tveimur árum síðan. Hann stóð sig vel með Stuttgart, sem féll samt sem áður úr þýsku úrvalsdeildinni. Þrátt fyrir fall Stuttgart var hann valinn nýliði ársins í þýsku úrvalsdeildinni, en það eru verðlaun sem Alphonso Davies, bakvörður Bayern München, fékk eftir síðasta tímabil.
Kabak fór til Schalke á 15 milljónir evra og hafnaði að fara til Bayern München. Hann taldi Schalke vera betri stað til að þróa leik sinn áfram.
Tyrkneski miðvörðurinn hefur spilað stórt hlutverk í liði Schalke sem hefur gengið hörmulega. Fram kemur á Inews að Kabak sé sterkur í loftinu og hann hafi unnið 57 af 74 skallaeinvígum sínum á tímabilinu, eða 77 prósent.
Í kerfi Liverpool er mikilvægt að miðverðir séu góðir á boltanum og hefur Kabak bætt sig mikið í því undanfarið. Hann hefur hitt 88 prósent sendinga sinna á samherja sína á þessu tímabili.
Kabak komst í vandræði fyrr á þessu tímabili þegar hann hrækti á andstæðing. Hann var dæmdur í fjögurra leikja bann. Kabak baðst afsökunar á því en sagðist ekki hafa gert það viljandi.
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, er sagður hafa rætt við góðvin sinn David Wagner um Kabak. Wagner þjálfaði Kabak hjá Schalke. Fram kemur á BBC að varnarmaðurinn hafi fengið góð meðmæli frá Wagner. Þjálfarinn hefur áður talað vel um tyrkneska varnarmanninn. „Hann er klárlega einn hæfileikaríkasti varnarmaður Evrópu í sínum aldursflokki," sagði Wagner.
Merson ekki sannfærður
Það verður spennandi að sjá þennan efnilega miðvörð í ensku úrvalsdeildinni. Paul Merson, sérfræðingur Sky Sports, er hins vegar ekki sannfærður um ágæti leikmannsins.

„Drengurinn hjá Schalke trúir því örugglega ekki hversu heppinn hann er. Það á slá umboðsmann hans til riddara. Hann er að fara frá liði sem hefur unnið einn leik á tímabilinu til ensku meistaranna. Þetta kom mér mjög mikið á óvart," segir Merson en hann segir Liverpool ekki vera að fá leikmenn úr efstu skúffu.
Talið er að Liverpool muni fá Kabak inn áður en félagaskiptaglugginn lokar í kvöld, og einnig Ben Davies, miðvörð Preston.